06 febrúar, 2010

Tímabilið byrjað!

Já það er svolítið seint að setja þennan titil á þessa færslu en sú er eiginlega raunin. Leiktíðin hjá Liverpool hefur ekki verið eins og maður hefði óskað eftir og liðið er búið að tapa alltof mörgum leikjum í deildinni, dottið úr meistaradeildinni og báðum bikurunum einnig að liðið á varla raunhæfan möguleika á því að hampa Englandsmeistaratitlinum.

Liðið er loksins komið í bullandi baráttu um fjórða Meistaradeildarsætið. Ljótt að segja að loksins sé liðið komið í þá baráttu en útlitið var nú ekki svo bjart fyrir nokkrum vikum saman og var fjórða sætið nokkuð fjarlægur möguleiki. Liðin í kringum fjórða sætið hafa líkt og Liverpool verið afar óstöðug, í raun líkt og öll liðin í deildinni. Þau fóru að tapa stigum og Liverpool vann smá saman niður forskot þeirra.

Með því að leggja Aston Villa, Tottenham og Everton á síðustu vikum hefur liðið komist aftur í baráttuna um fjórða sætið og er sem stendur í fjórða sætinu en gæti samt misst það í hendur Man City sem á leik til góða. Staðan er strax orðin betri en hún var fyrir nokkru síðan og getur hún orðið ennþá betri nái liðið að vinna næstu tvo deildarleiki sína sem eru gegn Arsenal sem eru í þriðja sætinu og Man City sem eru í harðri baráttu við Liverpool.

Maður hefur lengi óskað sér þess eftir sigurleiki liðsins að það nái loksins að snúa gengi sínu við og komist á sigurbraut. Eftir sigurleikina gegn Man Utd og Everton fyrr á leiktíðinni bjóst maður vel við að liðið fengi byr undir báða vængi og héldi uppteknum hætti í næsta leik, sú reyndist ekki raunin og liðið fór að missa stig í næsta leik á eftir.

Núna þegar Liverpool vann Wolves annan í jólum þá hefur liðið ekki tapað í deildarleik síðan, liðið tapaði gegn Reading í bikarnum en það er allt annar handleggur. Síðan þá hefur liðið eins og áður segir ekki tapað deildarleik síðan þá. Liðið hefur þó gert tvö jafntefli, ósanngjarnt jafntefli gegn Stoke og slakt jafntefli gegn Wolves.

Varnarleikur liðsins sem var afar dapur á fyrri hluta tímabilsins er kominn í gang, liðið hefur fengið á sig eitt mark í síðustu sjö leikjum og miðað við hvernig fyrri hlutinn spilaðist þá er það afar gott og jákvætt. Vörnin virtist fá nýjan kraft með innkomu Sotiris Kyrgiakos sem kom inn í liðið gegn Stoke, skoraði þá mark Liverpool og var besti maður liðsins í næstu leikjum sem eftir fylgdu. Carragher færðist yfir í bakvörðinn og Skrtel sem virðist vera smám saman að ná sér á strik aftur. Nú er Agger einnig kominn aftur og átti mjög góðan leik gegn Everton.

Kyrgiakos fékk nokkuð verðskuldað rautt spjald fyrir glannalega tæklingu gegn Everton sem er synd vegna spilamennsku hans undanfarið. Þó ég sé á því að hann hafi fengið verðskuldað rétt spjald þá er ég afar, afar ósáttur við þá ákvörðun dómarans að vísa ekki Fellaini leikmanni Everton útaf á sama tíma. Hann hoppar viljandi með takkana í leggina á Kyrgiakos þegar hann fer í tæklinguna og er þetta skíthælabragð eins og þau gerast verst. Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi Fellaini því ég er ekki hrifinn af svona skíthælum í fótboltanum eins og mér finnst hann vera og ekki vann hann sig inn í áliti hjá mér eftir þetta. Ég er ekki stoltur af því en ég var mjög ánægður þegar hann gat ekki komið aftur inn á völlinn, miðað við að hann fékk ekki að líta rauða spjaldið þá átti hann alls ekkert skilið að koma aftur inn á völlinn og hafa einhver áhrif á leikinn.

Einnig ákvörðun dómarans að reka ekki Steve Piennar útaf fyrr í leiknum því nokkrum mínútum fyrir brot Kyrgiakos þá tók Piennar ógeðslega tæklingu á Mascherano þar sem hann fór með sólann ofarlega á legg Mascherano, mölbraut legghlífina og dómarinn í ágætis sjónarhorni en gefur Piennar aðeins gult spjald. Alveg fáranlegur dómur að mínu mati því hann hefði auðveldlega getað stórslasað Mascherano.

Margir leikmenn liðsins sem hafa spilað undir getu lungann af tímabilinu virðast vera að komast í gang og sér maður loksins lífsmark í mönnum eins og Gerrard, Insua, Skrtel og Carragher hafa loksins spilað eins og menn fleiri en einn leik í röð á meðan að þeir Mascherano og Dirk Kuyt hafa verið alveg frábærir í síðustu leikjum.

Mascherano er loksins að spila eins og hann á að sér að gera. Hann er aftur orðinn mikilvægur í leik liðsins og hefur verið mjög öflugur á miðsvæðinu. Ég hlakka til að sjá Aquilani komast á fullt og taka sér stöðu við hlið hans á miðjunni því hann er betri á boltanum en Lucas og þegar liðið er farið að vera kröftugt í sóknarleiknum þá vil ég sjá Aquilani á miðjunni.

Lucas hefur staðið sig vel það verður ekki tekið af honum, ég er mjög hrifin af honum. Ég er samt á því að Aquilani sé betri leikmaður en Lucas og hlakka mjög til að sjá hann fá fast sæti í liðinu því ég held að hann geti orðið afar mikilvægur hlekkur í liði Liverpool.

Varðandi Dirk Kuyt sem heldur áfram að stíga upp í fjarveru Fernando Torres og skorar enn þessi mikilvægu mörk líkt og hann hefur gert undanfarin tímabil. Hann er enn að spila að mestu sem kantmaður en skorar enn töluvert mikið af mörkum. Mjög góður leikmaður og mikilvægur hlekkur í liði Liverpool, hvort sem mönnum líkar betur eða verr.

Liverpool er komið á skrið, í bullandi baráttu um fjórða sætið og nái Liverpool að leggja Man City og Arsenal að velli stendur liðið vel að vígi fyrir komandi baráttu og verða mun öflugari þegar Fernando Torres, Glen Johnson og Yossi Benayoun koma aftur úr meiðslum sínum.

Tímabilið virðist því loksins vera byrjað almennilega hjá Liverpool og vonandi að liðið haldi þessu flugi áfram og byggi á þessum undanförnu frammistöðum sínum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli