Liðinu tókst engu að síður að taka sig saman í andlitinu og sigraði Stoke 4-0 í ágætum leik þar sem sóknarleikur liðsins var nokkuð góður. Einn af nýju leikmönnumliðsins, Glen Johnson, átti frábæran leik þar sem hann skoraði og lagði upp mark, einnig átti Lucas virkilega góðan leik að mínu mati og sást hvernig hann stjórnaði miðjuspilinu eins og herforingi í leiknum.

Ég hef ekkert á móti gagnrýni þegar einhver á hana skilið en þetta með Lucas er bara virkilega ósanngjarnt og jaðrar við einelti. Leikmaðurinn er 22 ára, kom úr annari heimsálfu og hefur verið að berjast um stöðu við nokkra af bestu miðjumönnum í heimi í tvö ár, ég get ekki séð fram á það að ef hann væri svona slakur eins og oft er talað um þá hefði hann nú ekki spilað þessi leiki sem hann hefur spilað á þessum tveimur árum.
Svo er það Ryan Babel, leikmaður sem ég hélt mikið upp á þegar hann var hjá Ajax og var ég því auðvitað virkilega, virkilega sáttur þegar ég sá að Liverpool hefði keypt hann og reiknaði ég með að þarna væri sko kominn leikmaður sem ætti sko heldur betur eftir að taka yfir heiminn. Því miður hefur þetta ekki gerst enn og spurning hvort þetta muni gerast.
Hann líkt og með Lucas hefur hæfileikana og potential í að slá í gegn en hann hefur bara ekki náð að virkja þá eins og hann ætti að hafa verið búinn að gera. Ég var sáttur með hann á fyrsta tímabilinu sínu þegar hann kom inn á eins og margir ungir leikmenn gera til að fá reynslu í svona deild og skoraði hann allnokkur mörk, tímabilið eftir var hins vegar alls ekki nógu gott þó svo að hlutverk hans hafi verið svipað og í kjölfarið fóru mínútum hans á vellinum að fækka enda liðið að leika mjög vel og hann ekki í samræmi við það.

Nabil El Zhar, Emiliano Insua og David Ngog hafa smám saman verið að koma inn í liðið á síðustu leiktíð og finnst mér allir þeir vera á góðri uppleið. Insua hefur verið að taka vinstri bakvarðarstöðuna í fjarveru Aurelio og á síðustu leiktíð var hann stundum tekinn framyfir hann, einnig heldur hann Andrea Dossena úr liðinu. El Zhar hefur komið öflugur inn af bekknum á síðustu leiktíð og átti hann oftar en ekki virkan þátt í að hjálpa liðinu að kreista sigur úr tap eða jafnteflisleikjum, Liverpool tapaði t.d. ekki leik þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði liðið alltaf í kjölfarið. Ég held að þetta geti orðið flottur kantmaður hjá Liverpool í framtíðinni nái hann að sýna framför á þessari leiktíð.

Nú eru tveir leikir búnir af tímabilinu og Ngog búinn að taka þátt í einum þeirra, þá kom hann inn á þegar rúmar tíu-fimmtán mínútur voru eftir af leiknum og skoraði hann með góðum skalla undir lok leiksins eftir að hafa átt ágætis snertingar á boltanum. Þetta er að mínu mati leikmaður sem gæti náð langt í Liverpool, hann er fljótur, sterkur í loftinu, fimur á boltanum og ágætis klárari. Framtíðar framherji hjá Liverpool gæti ég trúað.
Ég hef verið mjög sáttur með leikmannakaup Liverpool í sumar en að sama skapi finnst mér synd að hafa séð á eftir Sami Hyypia, Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso, en er alveg sáttur með þá sem fengnir voru í staðinn.
Glen Johnson var keyptur og tekur við hægri bakvarðarstöðunni af Arbeloa. Johnson hefur byrjað feril sinn hjá Liverpool mjög vel og er ég nokkuð viss um að hann muni reynast peninganna virði. Í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins hefur hann fiskað víti, skorað mark, lagt upp mark og verið hvað virkasti maðurinn í sóknarleiknum en samt sem áður kominn aftur að verjast þegar þess þarf.

Nýjasti leikmaður Liverpool var fenginn til að fylla skarð Sami Hyypia hjá liðinu eftir að Finninn ákvað að yfirgefa herbúðir liðsins eftir tíu ára dvöl, frábær leikmaður, frábær atvinnumaður, mikill leiðtogi og auðvitað mikill missir. Sotiris Kyrgiakos sem var fenginn í hans stað er í raun eins og aðeins villtari útgáfa af Hyypia, hann er stór, sterkur tæklari og gífurlega öflugur skallamaður sem hefur verið duglegur að skora mörk eftir föst leikatriði líkt og Hyypia.

Þá er það þriðji leikmaðurinn sem fenginn var til liðsins og sennilega sá sem mun hvað mest mæða á þegar líður á leiktíðina. Þetta er ítalski miðjumaðurinn, Alberto Aquilani, sem var fenginn til að taka við stöðu Xabi Alonso á miðjunni. Það er ekki auðvelt að vera fenginn inn til að taka stöðu Xabi á miðsvæðinu enda hefur hann stjórnað því svæði eins og hershöfðingi í gegnum síðustu fimm ár og var hann gífurlega mikilvægur hlekkur í Liverpool á síðustu leiktíð.
Það sem ég hef séð til Aquilani þá finnst mér hann ekki líkur leikmaður og Alonso, hann getur sent boltann vel og dreift spilinu ágætlega en hann er miklu hreyfanlegri en Alonso sem fékk boltann oft aftarlega og stjórnaði spilinu þaðan. Aquilani gæti að ég held stjórnað spilinu framar á vellinum og jafnvel aukið sóknarþunga liðsins með því, hlaupum sínum í eyðurnar og öflugu langskotum sínum.

Miðað við kaup nýrra leikmanna og sölur á nokkrum þeirra sem fyrir voru þá finnst mér liðið koma út svona nokkurn veginn á svipuðum stað, þó auðvitað er alltaf spurningarmerki hvernig nýjir leikmenn koma í nýtt lið og jafnvel í nýja deild. Ég er mjög sáttur með leikmannahópinn eins og hann er í dag, en ég væri þó til í að sjá einn sóknarmann koma inn í hópinn fyrir lok félagaskiptagluggans. Það þyrfti ekki að vera framherji endilega heldur væri ég helst til í leikmenn sem gæti leikið á köntunum, í holunni og jafnvel sem fremsti maður eða með öðrum framherja.
Ég held að ég myndi ekki vilja fá eitthvað stórt nafn eins og David Villa eða einhvern af þeirri stærð og verðmiða, ég gæti trúað að það gæti ruglað balance-ið í liðinu líkt og gerðist með Robbie Keane á síðustu leiktíð. Ég yrði sáttur með að fá leikmann eins og Sanli Tuncay, Rafael van der Vaart eða einhvern öflugan Suður-Amerískan ungling sem yrði stærri og betri en Messi.:) Sá leikmaður sem kæmi inn í svona stöðu þyrfti ekki að vera dýr og tel ég að t.d. þeir Tuncay og van der Vaart gætu báðir kostað eitthvað í kringum sjö til tíu milljónir punda hvor og myndi ég alls ekki slá hendina á móti öðrum þeirra eða báðum.
Ég geri væntingar til Liverpool á komandi leiktíð, ég geri kanski ekki þá kröfu á bókaðan sigur í Úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni eða einhverjum bikar en ég geri þá kröfu að liðið verði í harðri baráttu um þá alla. Það eru mörg öflug lið í deildinni og nái liðið að berjast aftur um titilinn líkt og á síðustu leiktíð þá yrði það gott þó ég voni svo heitt og innilega að þeir taki næsta skref og verði Englandsmeistaratitilinn, hópurinn og hæfileikarnir eru til staðar og nú þarf bara að láta kné fylgja kviði og hampa hinum langþráða nítjánda Englandsmeistaratitli.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli