
Ég er ekki lítið pirraður út í þennan tapleik gegn Aston Villa. Liðið var í sjálfu sér alveg ágætt og að mínu mati var Liverpool sterkari aðilinn í leiknum en það gekk erfiðlega að brjóta að baki tíu manna vörn Aston Villa og ekki bætti úr skák að Brad Friedel átti stórleik á milli stanga mótherjana.
Það að liðið hafi ekki skorað fleiri en eitt mark er ekki það sem ég hef áhyggjur af, hann bara datt ekki fyrir okkur í dag og ætla ég að skrifa það á einskæra óheppni og já, að sjálfsögðu Friedel. Það er hins vegar varnarleikurinn í föstum leikatriðum sem að ég er alveg kominn með upp í kok af.
Það virðist vera að flest af þeim mörkum sem liðið fær á sig er eftir lélega útfærslu á dekkingu eftir horn- eða aukaspyrnur. Það finnst mér alveg hreint ótrúlegt og nú á þessari leiktíð er liðið búið að fá á sig fjögur af fimm mörkum fengnum á sig eftir föst leikatriði, og það fimmta úr vítaspyrnu. Þetta er bara alls ekki ásættanlegt að mínu mati.
Ég vil ekki beina fingrinum að svæðisdekkingu Rafa Benítez enda hefur hún virkað oft í gegnum tíðina og ég kanski sé ekki endilega fram á öruggari varnarleik með öðruvísi útfærslu. Það er hins vegar hvernig leikmennirnir bregðast oft við þegar á að verjast slíkum færum - menn virðast bara ekki tjá sig rétt, hlaupa fyrir hvorn annan, dekka illa og það allra, allra versta AÐ SKILJA ALLTAF EFTTIR LAUSAN MANN Á FJÆRSTÖNG!
Ég veit ekki hversu oft ég hef séð slíkan 'varnarleik' eiga sér stað og þá kemur einna helst í hugann á mér tapleikirnir tveir gegn Everton í fyrra þegar ekki slakari skallamaður en Tim Cahill var skilinn eftir einn á auðum sjó á fjærstönginni bara með því að hann gekk á annan stað og fór svo aftur á fjærstöngina.
Liðið er með góða skallamenn, Torres, Gerrard, Riera, Carra, Skrtel, Agger og fleiri kunna alveg að skalla bolta en það virkar oft eins og flest öll önnur lið í deildinni hafi sterkari skallamenn en við. Ég verð að viðurkenna það að ég sakna Sami Hyypia, maðurinn er algjör háloftakonungur og átti hann teiginn oftar en ekki bæði sóknar- og varnarlega.
Ég hef trú á að Sotiris Kyrgiakos gæti komið með svipað og Hyypia inn í liðið. Hann er ógurlega sterkur skallamaður og það sem hann hefur held ég fram yfir hina miðverði liðsins, ég segi þetta aðeins bara eftir því sem ég hef séð til hans gæti vel verið að það sé ekki alveg rétt, er að hann er miklu duglegri í að vinna þessa skallabolta, þegar hann fer í loftið þá virðist hann bara eigna sér það - svipað og maður sá Sami Hyypia ósjaldan gera.
Svo hvað varðar föst leikatriði í sóknarleiknum þá er ég einnig á því máli að við fáum ekki jafn mikið út úr þeim. Eins og ég sagði áður þá höfum við marga frábæra skallamenn sem léttilega ættu að geta sett inn einhver mörk eftir slíkar spyrnur en því miður eru spyrnurnar sjálfar ekki alltaf nógu góðar og stundum virðast þær ekki komast fram yfir fyrsta varnarmann. Það er mikill hængur á sóknarleiknum.
Við sjáum því miður önnur lið skora slatta af mörkum sínum eftir góðar og fjölbreyttar hornspyrnur en það er bara því miður eitthvað sem Liverpool skortir að mínu mati. Liðið þarf að taka sig á í föstum leikatriðum ætli það sér að ná einhverjum árangri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli