01 september, 2009

Vonbrigðin í ágúst


Þá er mjög erfiðum mánuði hjá Liverpool loks lokið, liðið er eingöngu með sex stig af tólf mögulegum sem er bara langt frá því að vera ásættanlegt að mínu mati. Liðið tapaði sanngjarnt fyrir Tottenham á útivelli en lenti í algjöru óþarfa tapi á heimavelli gegn Aston Villa.

Villa vann leikinn með þremur mörkum gegn einu, það er staða sem gefur ekki beint rétta mynd af leiknum að mínu mati. Liverpool lék ekki vel en var þó yfir heildina séð sterkari aðili leiksins en það bara tókst ekki að klára leikinn og auðvitað lenti liðið í miklu basli með föstu leikatriðin. Ég fór aðeins inn á þau í færslunni hér að neðan og nenni ekki að fara eitthvað nánar út í það núna.

Liðið í heild sinni hefur ekki verið að heilla mig nægilega mikið en það eru þó nokkrir leikmenn sem ég hef verið nokkuð sáttur með og ber þar hæst að nefna Glen Johnson. Hann hefur verið frábær í öllum fjórum leikjunum, hann er með tvö mörk skoruð, eina stoðsendingu, fiskað víti og alltaf er stanslaus ógn af honum í sóknarleik Liverpool.

Hann er að koma með nýja vídd í leik Liverpool sem ég hef að ég held aldrei upplifað áður, bakvörður sem er sterkur í varnarleiknum og framar á vellinum er hann einn áhrifamesti sóknarmaðurinn. Ég hef aldrei upplifað slíkan leikmann í þessari stöðu hjá Liverpool, í aðeins fjórum leikjum er hann búinn að jafna fjölda marka skoraða hjá Alvaro Arbeloa sem skoraði þau á tveimur og hálfum tímabilum. Þetta boðar bara mjög gott að mínu mati.
Vinstri bakvarðarstaðan er líka nokkuð spennandi; þar er Emiliano Insua að leika mjög vel og er virkur aðili í sóknarleik liðsins þó svo að hann sé kanski ekki með nægilega margar stoðsendingar þá er hann virkilega öflugur sóknarbakvörður sem á framtíðina fyrir sér hjá Liverpool.
Svo er auðvitað Fabio Aurelio að snúa aftur eftir meiðsli og þar kemur inn virkilega góður leikmaður sem er sterkur varnarlega, áhrifamikill í sóknarleiknum og ekki skemmir fyrir að hann er mjög hættulegur í föstum leikatriðum - eitthvað sem mér finnst vanta meiri ógn í hjá liðinu þessa stundina. Hann kemur eins og nýr leikmaður í leikmannahópinn á tímabilinu og hlakka ég mikið til að sjá hann aftur í liðinu.

Svo er það auðvitað Andrea Dossena sem er sterkur bakvörður sem hefur þó ekki tekist að sýna sínar réttu hliðar hjá Liverpool eftir sína fyrstu leiktíð. Nú er hann orðinn reynslunni ríkari eftir þetta tímabil og tel ég að hann geti nú farið að sýna hversu hann er megnugur. Þrátt fyrir slakt tímabil á síðustu leiktíð þá er hann alltaf fastamaður í landsliðinu og þar gengur honum vel og því tel ég það bara vera tímaspursmál hvenær honum tekst að springa út hjá Liverpool. Ég hef líka svolitla trú á því að hann gæti verið notaður meira á vinstri kantinum heldur en í bakverðinum á tímabilinu, hann kom inn á sem kantmaður undir lok síðustu leiktíðar og fannst mér hann oft líta betur út þar en í bakverðinum. Þar sem Riera er eini örfætti kantmaðurinn í liðinu þá gæti ég alveg séð Dossena geta leyst hann af á kantinum eða þá jafnvel Aurelio sem yrði ekki slakari kostu í þá stöðu.

Leikmenn eins og Steven Gerrard, Fernando Torres og Jamie Carragher hafa ekki verið að sýna sitt rétta andlit enn sem komið er, auðvitað er Gerrard búinn að skora tvö mörk og með fjórar stoðsendingar og Torres með þrjú mörk og eina stoðsendingu en samt hafa báðir leikmennirnir ekki verið að sýna sitt rétta andlit.

Gerrard hefur verið eitthvað fjarri í hausnum stundum að mér finnst, hann tekur rispu í einhverjum leik en dettur svo út úr honum eftir smá stund og svona gengur þetta fyrir sig aftur og aftur. Það var ekki fyrr en í leiknum gegn Bolton að mér fannst hann vera stöðugt inn í leiknum og loksins með höfuðið fyrir ofan bringu - hann sýndi það alveg þegar hann skoraði glæsilegt sigurmark undir lok leiksins og tel ég að þetta geti komið til með að kveikja í fyrirliðanum.

Torres hefur eytt alltof miklum tíma og púðri í að kvarta og tuða eitthvað. Ég ljái honum það alls ekki enda er hann að fá alveg hrottalega meðferð frá varnarmönnum deildarinnar og fær oft ekki aukaspyrnur þegar hann á að fá það. Mér finnst ég stöðugt vera var við að varnarmenn eru í bakinu á honum og eina leiðin til að stoppa hann þegar hann fær boltann er að narta í hælinn á honum, tosa í hann eða einhver slík óþverrabrögð. Þó svo að meðferðin sé svona þá finnst mér hann samt æsast of fljótt og þegar hann er pirraður þá er oft hættan á finnst mér að honum takist að gleyma sér í tuði og það komi niður á leik hans - líkt og hefur gerst í síðastliðnum mánuði. Hann er samt með þrjú mörk og á helling inni, vonandi kemur hann sterkur inn eftir landsleikjahléð og leiki sinn besta leik, ef það gerist þá munum við fá að sjá helling af mörkum frá Torres í næstu leikjum.

Margir leikmenn hafa verið meiddir yfir þessa fjóra leiki - Fabio Aurelio snýr aftur eftir landsleikahléð, endurhæfingar Daniel Agger, Nabil El Zhar og Alberto Aquilani ganga mjög vel og því ætti að styttast í að þeir verði klárir. Þegar allir þessir fjórir leikmenn verða klárir þá koma að mínu mati fjórir mjög góðir leikmenn eins og nýir leikmenn í hópinn sem er ekkert annað en jákvætt.

Það er fullsnemmt að útiloka liðið úr titilbaráttunni enda eru 34 leikir eftir í deildinni og allir innbyrðisleikirnir við liðin sem ættu að vera í kringum toppinn eftir líka, svo við eigum enn mjög góða möguleika á að koma okkur á rétt skrið og á toppinn. Slæm byrjun á að kveikja í liðinu og sýna þeim það algjörlega á svörtu á hvítu að nú er ekkert pláss fyrir mistök og er ég ekki frá því að liðið leikur bara hvað best þegar það er undir pressu sem þessari.

24 ágúst, 2009

Föst leikatriði


Ég er ekki lítið pirraður út í þennan tapleik gegn Aston Villa. Liðið var í sjálfu sér alveg ágætt og að mínu mati var Liverpool sterkari aðilinn í leiknum en það gekk erfiðlega að brjóta að baki tíu manna vörn Aston Villa og ekki bætti úr skák að Brad Friedel átti stórleik á milli stanga mótherjana.

Það að liðið hafi ekki skorað fleiri en eitt mark er ekki það sem ég hef áhyggjur af, hann bara datt ekki fyrir okkur í dag og ætla ég að skrifa það á einskæra óheppni og já, að sjálfsögðu Friedel. Það er hins vegar varnarleikurinn í föstum leikatriðum sem að ég er alveg kominn með upp í kok af.

Það virðist vera að flest af þeim mörkum sem liðið fær á sig er eftir lélega útfærslu á dekkingu eftir horn- eða aukaspyrnur. Það finnst mér alveg hreint ótrúlegt og nú á þessari leiktíð er liðið búið að fá á sig fjögur af fimm mörkum fengnum á sig eftir föst leikatriði, og það fimmta úr vítaspyrnu. Þetta er bara alls ekki ásættanlegt að mínu mati.

Ég vil ekki beina fingrinum að svæðisdekkingu Rafa Benítez enda hefur hún virkað oft í gegnum tíðina og ég kanski sé ekki endilega fram á öruggari varnarleik með öðruvísi útfærslu. Það er hins vegar hvernig leikmennirnir bregðast oft við þegar á að verjast slíkum færum - menn virðast bara ekki tjá sig rétt, hlaupa fyrir hvorn annan, dekka illa og það allra, allra versta AÐ SKILJA ALLTAF EFTTIR LAUSAN MANN Á FJÆRSTÖNG!

Ég veit ekki hversu oft ég hef séð slíkan 'varnarleik' eiga sér stað og þá kemur einna helst í hugann á mér tapleikirnir tveir gegn Everton í fyrra þegar ekki slakari skallamaður en Tim Cahill var skilinn eftir einn á auðum sjó á fjærstönginni bara með því að hann gekk á annan stað og fór svo aftur á fjærstöngina.

Liðið er með góða skallamenn, Torres, Gerrard, Riera, Carra, Skrtel, Agger og fleiri kunna alveg að skalla bolta en það virkar oft eins og flest öll önnur lið í deildinni hafi sterkari skallamenn en við. Ég verð að viðurkenna það að ég sakna Sami Hyypia, maðurinn er algjör háloftakonungur og átti hann teiginn oftar en ekki bæði sóknar- og varnarlega.

Ég hef trú á að Sotiris Kyrgiakos gæti komið með svipað og Hyypia inn í liðið. Hann er ógurlega sterkur skallamaður og það sem hann hefur held ég fram yfir hina miðverði liðsins, ég segi þetta aðeins bara eftir því sem ég hef séð til hans gæti vel verið að það sé ekki alveg rétt, er að hann er miklu duglegri í að vinna þessa skallabolta, þegar hann fer í loftið þá virðist hann bara eigna sér það - svipað og maður sá Sami Hyypia ósjaldan gera.

Svo hvað varðar föst leikatriði í sóknarleiknum þá er ég einnig á því máli að við fáum ekki jafn mikið út úr þeim. Eins og ég sagði áður þá höfum við marga frábæra skallamenn sem léttilega ættu að geta sett inn einhver mörk eftir slíkar spyrnur en því miður eru spyrnurnar sjálfar ekki alltaf nógu góðar og stundum virðast þær ekki komast fram yfir fyrsta varnarmann. Það er mikill hængur á sóknarleiknum.

Við sjáum því miður önnur lið skora slatta af mörkum sínum eftir góðar og fjölbreyttar hornspyrnur en það er bara því miður eitthvað sem Liverpool skortir að mínu mati. Liðið þarf að taka sig á í föstum leikatriðum ætli það sér að ná einhverjum árangri.

22 ágúst, 2009

Leikmannakaup, ungstirni og væntingar

Loksins er tímabilið hafið, eitthvað sem ég hef ekki getað beðið eftir síðan flautað var af lokaleik deildarinnar í fyrra. Því miður náðu mínir menn ekki að hefja nýtt tímabil nákvæmlega eins og þeir enduðu hitt, lokaleikurinn á síðustu leiktíð var sigurleikur gegn Tottenham en fyrsti leikur þessarar leiktíðar var tapleikur gegn Tottenham, ekki alveg sú byrjun sem maður vonaði eftir en of seint að svekkja sig á því núna.

Liðinu tókst engu að síður að taka sig saman í andlitinu og sigraði Stoke 4-0 í ágætum leik þar sem sóknarleikur liðsins var nokkuð góður. Einn af nýju leikmönnumliðsins, Glen Johnson, átti frábæran leik þar sem hann skoraði og lagði upp mark, einnig átti Lucas virkilega góðan leik að mínu mati og sást hvernig hann stjórnaði miðjuspilinu eins og herforingi í leiknum.

Ég persónulega hef mikla trú á Lucas hjá Liverpool og hef alltaf haft hana. Strákurinn hefur potential og hæfileikana til að ná langt. Hann hefur að mínu mati þurft að þola mikla gagnrýni í gegnum árin og oftar en ekki er sú gagnrýni ósanngjörn.

Ég hef ekkert á móti gagnrýni þegar einhver á hana skilið en þetta með Lucas er bara virkilega ósanngjarnt og jaðrar við einelti. Leikmaðurinn er 22 ára, kom úr annari heimsálfu og hefur verið að berjast um stöðu við nokkra af bestu miðjumönnum í heimi í tvö ár, ég get ekki séð fram á það að ef hann væri svona slakur eins og oft er talað um þá hefði hann nú ekki spilað þessi leiki sem hann hefur spilað á þessum tveimur árum.

Svo er það Ryan Babel, leikmaður sem ég hélt mikið upp á þegar hann var hjá Ajax og var ég því auðvitað virkilega, virkilega sáttur þegar ég sá að Liverpool hefði keypt hann og reiknaði ég með að þarna væri sko kominn leikmaður sem ætti sko heldur betur eftir að taka yfir heiminn. Því miður hefur þetta ekki gerst enn og spurning hvort þetta muni gerast.

Hann líkt og með Lucas hefur hæfileikana og potential í að slá í gegn en hann hefur bara ekki náð að virkja þá eins og hann ætti að hafa verið búinn að gera. Ég var sáttur með hann á fyrsta tímabilinu sínu þegar hann kom inn á eins og margir ungir leikmenn gera til að fá reynslu í svona deild og skoraði hann allnokkur mörk, tímabilið eftir var hins vegar alls ekki nógu gott þó svo að hlutverk hans hafi verið svipað og í kjölfarið fóru mínútum hans á vellinum að fækka enda liðið að leika mjög vel og hann ekki í samræmi við það.

Auðvitað mætti alveg gefa honum fleiri sénsa í röð og sjá hvernig hann bregst við því, kanski fær hann sjálfstraustið og kemur af þreföldum krafti í liðið eða kanski hefur hann bara ekki það sem þarf í félag eins og Liverpool. Mér finnst þetta synd enda er ég mikill aðdáandi hans, ég hef trú á því að þetta tímabil gæti orðið hans tími en hann þarf þá virkilega að fara að taka sig saman í andlitinu.

Nabil El Zhar, Emiliano Insua og David Ngog hafa smám saman verið að koma inn í liðið á síðustu leiktíð og finnst mér allir þeir vera á góðri uppleið. Insua hefur verið að taka vinstri bakvarðarstöðuna í fjarveru Aurelio og á síðustu leiktíð var hann stundum tekinn framyfir hann, einnig heldur hann Andrea Dossena úr liðinu. El Zhar hefur komið öflugur inn af bekknum á síðustu leiktíð og átti hann oftar en ekki virkan þátt í að hjálpa liðinu að kreista sigur úr tap eða jafnteflisleikjum, Liverpool tapaði t.d. ekki leik þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði liðið alltaf í kjölfarið. Ég held að þetta geti orðið flottur kantmaður hjá Liverpool í framtíðinni nái hann að sýna framför á þessari leiktíð.

David Ngog er leikmaður sem ég hef alveg bullandi trú á síðan ég sá hann spila fyrst á undirbúningstímabilinu í fyrra. Hann skoraði nokkur mörk og var mjög flottur á boltanum, ég var sáttur þegar ég fór að sjá hann reglulega á bekknum á síðustu leiktíð og var mjög heillaður af því hvernig hann spilaði í þau skipti sem hann kom inn á, mínúturnar sem hann fékk voru ekki margar en það virtist ekki slá hann út af laginu og skoraði hann þrjú mörk, sem er nokkuð fínt ef litið er á það að hann kom inn á sem skiptimaður undir lok leikja í fimmtán af þeim átján skiptum sem hann spilaði fyrir liðið á síðustu leiktíð.

Nú eru tveir leikir búnir af tímabilinu og Ngog búinn að taka þátt í einum þeirra, þá kom hann inn á þegar rúmar tíu-fimmtán mínútur voru eftir af leiknum og skoraði hann með góðum skalla undir lok leiksins eftir að hafa átt ágætis snertingar á boltanum. Þetta er að mínu mati leikmaður sem gæti náð langt í Liverpool, hann er fljótur, sterkur í loftinu, fimur á boltanum og ágætis klárari. Framtíðar framherji hjá Liverpool gæti ég trúað.

Ég hef verið mjög sáttur með leikmannakaup Liverpool í sumar en að sama skapi finnst mér synd að hafa séð á eftir Sami Hyypia, Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso, en er alveg sáttur með þá sem fengnir voru í staðinn.

Glen Johnson var keyptur og tekur við hægri bakvarðarstöðunni af Arbeloa. Johnson hefur byrjað feril sinn hjá Liverpool mjög vel og er ég nokkuð viss um að hann muni reynast peninganna virði. Í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins hefur hann fiskað víti, skorað mark, lagt upp mark og verið hvað virkasti maðurinn í sóknarleiknum en samt sem áður kominn aftur að verjast þegar þess þarf.

Hann er að mínu mati miklu ógnvænlegri kostur fyrir andstæðingana að mæta heldur en Arbeloa, ég var alltaf mjög hrifinn af Arbeloa og fannst hann oftar en ekki mjög vanmetinn þegar kom að sóknartilburðum en sóknartilburðir Johnson eru ekkert vafaatriði en heldur hefur varnarleikur hans verið gagnrýndur, líkt og með sóknarleik Arbeloa þá finnst mér varnarleikur Johnson vera vanmetinn. Að mínu mati kemur Liverpool sterkara út úr þessum breytingum en hefði ég engu að síður viljað hafa Arbeloa enn hjá Liverpool og veita honum þá samkeppni sem hann ætti að fá.

Nýjasti leikmaður Liverpool var fenginn til að fylla skarð Sami Hyypia hjá liðinu eftir að Finninn ákvað að yfirgefa herbúðir liðsins eftir tíu ára dvöl, frábær leikmaður, frábær atvinnumaður, mikill leiðtogi og auðvitað mikill missir. Sotiris Kyrgiakos sem var fenginn í hans stað er í raun eins og aðeins villtari útgáfa af Hyypia, hann er stór, sterkur tæklari og gífurlega öflugur skallamaður sem hefur verið duglegur að skora mörk eftir föst leikatriði líkt og Hyypia.

Hann er þrítugur og hefur mikla reynslu úr mörgum deildum en hann hefur leikið áður í breskum fótbolta, þá lék hann með Rangers í Skotlandi yfir eitt og hálft tímabil en þar átti hann stóran þátt í að gera liðið að deildar- og bikarmeistara. Hann fékkst fyrir lítinn pening og gæti orðið góður kostur til að berjast um stöðu við Carragher, Skrtel og Agger enda býður hann upp á eitthvað sem að aðrir gera kanski ekki.

Þá er það þriðji leikmaðurinn sem fenginn var til liðsins og sennilega sá sem mun hvað mest mæða á þegar líður á leiktíðina. Þetta er ítalski miðjumaðurinn, Alberto Aquilani, sem var fenginn til að taka við stöðu Xabi Alonso á miðjunni. Það er ekki auðvelt að vera fenginn inn til að taka stöðu Xabi á miðsvæðinu enda hefur hann stjórnað því svæði eins og hershöfðingi í gegnum síðustu fimm ár og var hann gífurlega mikilvægur hlekkur í Liverpool á síðustu leiktíð.

Það sem ég hef séð til Aquilani þá finnst mér hann ekki líkur leikmaður og Alonso, hann getur sent boltann vel og dreift spilinu ágætlega en hann er miklu hreyfanlegri en Alonso sem fékk boltann oft aftarlega og stjórnaði spilinu þaðan. Aquilani gæti að ég held stjórnað spilinu framar á vellinum og jafnvel aukið sóknarþunga liðsins með því, hlaupum sínum í eyðurnar og öflugu langskotum sínum.

Því miður var hann meiddur þegar hann var fenginn til liðsins og því þarf maður að bíða ögn eftir því að fá að sjá hann spreyta sig en vonandi verður hann biðarinnar virði, ég persónulega hef trú á því að hann muni fylla skarð Alonso með miklum sóma og vera mikilvægur hlekkur í liði Liverpool á næstu árum.

Miðað við kaup nýrra leikmanna og sölur á nokkrum þeirra sem fyrir voru þá finnst mér liðið koma út svona nokkurn veginn á svipuðum stað, þó auðvitað er alltaf spurningarmerki hvernig nýjir leikmenn koma í nýtt lið og jafnvel í nýja deild. Ég er mjög sáttur með leikmannahópinn eins og hann er í dag, en ég væri þó til í að sjá einn sóknarmann koma inn í hópinn fyrir lok félagaskiptagluggans. Það þyrfti ekki að vera framherji endilega heldur væri ég helst til í leikmenn sem gæti leikið á köntunum, í holunni og jafnvel sem fremsti maður eða með öðrum framherja.

Ég held að ég myndi ekki vilja fá eitthvað stórt nafn eins og David Villa eða einhvern af þeirri stærð og verðmiða, ég gæti trúað að það gæti ruglað balance-ið í liðinu líkt og gerðist með Robbie Keane á síðustu leiktíð. Ég yrði sáttur með að fá leikmann eins og Sanli Tuncay, Rafael van der Vaart eða einhvern öflugan Suður-Amerískan ungling sem yrði stærri og betri en Messi.:) Sá leikmaður sem kæmi inn í svona stöðu þyrfti ekki að vera dýr og tel ég að t.d. þeir Tuncay og van der Vaart gætu báðir kostað eitthvað í kringum sjö til tíu milljónir punda hvor og myndi ég alls ekki slá hendina á móti öðrum þeirra eða báðum.

Ég geri væntingar til Liverpool á komandi leiktíð, ég geri kanski ekki þá kröfu á bókaðan sigur í Úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni eða einhverjum bikar en ég geri þá kröfu að liðið verði í harðri baráttu um þá alla. Það eru mörg öflug lið í deildinni og nái liðið að berjast aftur um titilinn líkt og á síðustu leiktíð þá yrði það gott þó ég voni svo heitt og innilega að þeir taki næsta skref og verði Englandsmeistaratitilinn, hópurinn og hæfileikarnir eru til staðar og nú þarf bara að láta kné fylgja kviði og hampa hinum langþráða nítjánda Englandsmeistaratitli.