01 september, 2009

Vonbrigðin í ágúst


Þá er mjög erfiðum mánuði hjá Liverpool loks lokið, liðið er eingöngu með sex stig af tólf mögulegum sem er bara langt frá því að vera ásættanlegt að mínu mati. Liðið tapaði sanngjarnt fyrir Tottenham á útivelli en lenti í algjöru óþarfa tapi á heimavelli gegn Aston Villa.

Villa vann leikinn með þremur mörkum gegn einu, það er staða sem gefur ekki beint rétta mynd af leiknum að mínu mati. Liverpool lék ekki vel en var þó yfir heildina séð sterkari aðili leiksins en það bara tókst ekki að klára leikinn og auðvitað lenti liðið í miklu basli með föstu leikatriðin. Ég fór aðeins inn á þau í færslunni hér að neðan og nenni ekki að fara eitthvað nánar út í það núna.

Liðið í heild sinni hefur ekki verið að heilla mig nægilega mikið en það eru þó nokkrir leikmenn sem ég hef verið nokkuð sáttur með og ber þar hæst að nefna Glen Johnson. Hann hefur verið frábær í öllum fjórum leikjunum, hann er með tvö mörk skoruð, eina stoðsendingu, fiskað víti og alltaf er stanslaus ógn af honum í sóknarleik Liverpool.

Hann er að koma með nýja vídd í leik Liverpool sem ég hef að ég held aldrei upplifað áður, bakvörður sem er sterkur í varnarleiknum og framar á vellinum er hann einn áhrifamesti sóknarmaðurinn. Ég hef aldrei upplifað slíkan leikmann í þessari stöðu hjá Liverpool, í aðeins fjórum leikjum er hann búinn að jafna fjölda marka skoraða hjá Alvaro Arbeloa sem skoraði þau á tveimur og hálfum tímabilum. Þetta boðar bara mjög gott að mínu mati.
Vinstri bakvarðarstaðan er líka nokkuð spennandi; þar er Emiliano Insua að leika mjög vel og er virkur aðili í sóknarleik liðsins þó svo að hann sé kanski ekki með nægilega margar stoðsendingar þá er hann virkilega öflugur sóknarbakvörður sem á framtíðina fyrir sér hjá Liverpool.
Svo er auðvitað Fabio Aurelio að snúa aftur eftir meiðsli og þar kemur inn virkilega góður leikmaður sem er sterkur varnarlega, áhrifamikill í sóknarleiknum og ekki skemmir fyrir að hann er mjög hættulegur í föstum leikatriðum - eitthvað sem mér finnst vanta meiri ógn í hjá liðinu þessa stundina. Hann kemur eins og nýr leikmaður í leikmannahópinn á tímabilinu og hlakka ég mikið til að sjá hann aftur í liðinu.

Svo er það auðvitað Andrea Dossena sem er sterkur bakvörður sem hefur þó ekki tekist að sýna sínar réttu hliðar hjá Liverpool eftir sína fyrstu leiktíð. Nú er hann orðinn reynslunni ríkari eftir þetta tímabil og tel ég að hann geti nú farið að sýna hversu hann er megnugur. Þrátt fyrir slakt tímabil á síðustu leiktíð þá er hann alltaf fastamaður í landsliðinu og þar gengur honum vel og því tel ég það bara vera tímaspursmál hvenær honum tekst að springa út hjá Liverpool. Ég hef líka svolitla trú á því að hann gæti verið notaður meira á vinstri kantinum heldur en í bakverðinum á tímabilinu, hann kom inn á sem kantmaður undir lok síðustu leiktíðar og fannst mér hann oft líta betur út þar en í bakverðinum. Þar sem Riera er eini örfætti kantmaðurinn í liðinu þá gæti ég alveg séð Dossena geta leyst hann af á kantinum eða þá jafnvel Aurelio sem yrði ekki slakari kostu í þá stöðu.

Leikmenn eins og Steven Gerrard, Fernando Torres og Jamie Carragher hafa ekki verið að sýna sitt rétta andlit enn sem komið er, auðvitað er Gerrard búinn að skora tvö mörk og með fjórar stoðsendingar og Torres með þrjú mörk og eina stoðsendingu en samt hafa báðir leikmennirnir ekki verið að sýna sitt rétta andlit.

Gerrard hefur verið eitthvað fjarri í hausnum stundum að mér finnst, hann tekur rispu í einhverjum leik en dettur svo út úr honum eftir smá stund og svona gengur þetta fyrir sig aftur og aftur. Það var ekki fyrr en í leiknum gegn Bolton að mér fannst hann vera stöðugt inn í leiknum og loksins með höfuðið fyrir ofan bringu - hann sýndi það alveg þegar hann skoraði glæsilegt sigurmark undir lok leiksins og tel ég að þetta geti komið til með að kveikja í fyrirliðanum.

Torres hefur eytt alltof miklum tíma og púðri í að kvarta og tuða eitthvað. Ég ljái honum það alls ekki enda er hann að fá alveg hrottalega meðferð frá varnarmönnum deildarinnar og fær oft ekki aukaspyrnur þegar hann á að fá það. Mér finnst ég stöðugt vera var við að varnarmenn eru í bakinu á honum og eina leiðin til að stoppa hann þegar hann fær boltann er að narta í hælinn á honum, tosa í hann eða einhver slík óþverrabrögð. Þó svo að meðferðin sé svona þá finnst mér hann samt æsast of fljótt og þegar hann er pirraður þá er oft hættan á finnst mér að honum takist að gleyma sér í tuði og það komi niður á leik hans - líkt og hefur gerst í síðastliðnum mánuði. Hann er samt með þrjú mörk og á helling inni, vonandi kemur hann sterkur inn eftir landsleikjahléð og leiki sinn besta leik, ef það gerist þá munum við fá að sjá helling af mörkum frá Torres í næstu leikjum.

Margir leikmenn hafa verið meiddir yfir þessa fjóra leiki - Fabio Aurelio snýr aftur eftir landsleikahléð, endurhæfingar Daniel Agger, Nabil El Zhar og Alberto Aquilani ganga mjög vel og því ætti að styttast í að þeir verði klárir. Þegar allir þessir fjórir leikmenn verða klárir þá koma að mínu mati fjórir mjög góðir leikmenn eins og nýir leikmenn í hópinn sem er ekkert annað en jákvætt.

Það er fullsnemmt að útiloka liðið úr titilbaráttunni enda eru 34 leikir eftir í deildinni og allir innbyrðisleikirnir við liðin sem ættu að vera í kringum toppinn eftir líka, svo við eigum enn mjög góða möguleika á að koma okkur á rétt skrið og á toppinn. Slæm byrjun á að kveikja í liðinu og sýna þeim það algjörlega á svörtu á hvítu að nú er ekkert pláss fyrir mistök og er ég ekki frá því að liðið leikur bara hvað best þegar það er undir pressu sem þessari.